Helsport Svalbard high 3 X-treme fjallatjald

Special Price 229.995 kr.

Helsport Svalbard high 3 X-treme tent

Vörunúmer: 265 281
Netverslun
Hallarmúla

Er varan uppseld?

Senda fyrirspurn um vöru

Svalbard high 3 hefur sannað sig á Norðurpólnum, Suðurpólnum og mörgum hæðstu fjöllum heims. Það má því með sanni segja að það sé meistari fjallaferða og öfga, enda algeng sjón í grunnbúðum fjallgöngumanna. Öll hönnun hefur verið þróuð og prófuð við kröfuhörðustu aðstæður, til að mynda þá er innratjaldið með 20kg slitstyrk sem er með þvi öflugasta sem finnst á markaðnum. Flaggskip X-tream línunar frá Helsport, það sameinar það besta frá kúlutjöldum og ílöngum "tunnel" tjöldum og er því bæði rúmgott og einstaklega sterkt. Heilsárstjald sem er hannað fyrir kröfuharðari aðstæður, mjög vind og veðurþolið. Straumlínulögun tjaldsins gerir það að verkum að það er einstaklega stöðugt í vindi og því kjörið fyrir fjalla- eða jöklaferðir.

Helstu upplýsingar:

  • 3000mm vatnsheldni
  • 360°opnun í fremra rými
  • Einfalt í uppsetningu og meðhöndlun.
  • Vasar í innra tjaldi fyrir búnað.
  • Flugnanet í innra tjaldi.
  • Helsport Airflow II loftunarkerfið tryggir bestu mögulegu loftun.
  • Sérhannaðar festingar á línum gera þær stöðugri og takmarka að þær flækist.
  • Styrkingar á öllum festum fyrir aukið veðurþol
  • Vindlokanir og snjóvörn
  • 2 inngangar
  • Rifþol 18 kg, 20 kg í innra tjaldi

Stærð poka: 23 x 50 cm
Þyngd tjalds: 5,6 kg (heildarþynd)
Þyngd hæla: 0,8 kg

Helsport Pole Channel system - Nánari upplýsingar