Yaktrax Pro hálkugormar

Special Price 4.995 kr.

Yaktrax Pro hálkugormar 

Vörunúmer:
stærð
Veldu eiginleika til að sjá stöðu
Netverslun
Hallarmúla

Er varan uppseld?

Senda fyrirspurn um vöru

Yaktrax hálkugormana þekkir margur útivistarmaðurinn af góðri raun, en þeir sem reynt hafa fullyrða að á þeim megi hlaupa á rennblautum ís án þess að eiga á hættu að renna til og detta. Þeir eru því afar góður kostur fyrir alla þá sem eru á ferðinni útivið þegar hálka og snjór gerir erfiðara um vik að ná góðri fótfestu. Skokkarar, bréfberar, hundaeigendur, stafgönguiðkendur, eldri borgarar á heilsubótargöngu, þannig mætti lengi telja alla þá sem geta nýtt sér kosti þess að hafa Yaktrax á fótum.

Pro útgáfan er með sterkari teygju og sverari vír í gormunum heldur en Walker, auk þess sem band er yfir ristina til þess að minnka líkurnar á að gormarnir detti af þegar hlaupið er eða gengið rösklega á þeim. Þeir eru því betri kostur fyrir þá sem nota gormana við mikla hreyfingu.