Helsport Patagonia 3 manna jöklatjald

Special Price 249.995 kr.

Helsport Patagonia 3 tent

Vörunúmer: 170 010
Netverslun
Hallarmúla

Er varan uppseld?

Senda fyrirspurn um vöru

Patagonia 3 hefur sannað sig sem áreiðanlegt vetrartjald. Það er hannað í samráði við heimskautakönnuðinn Børge Ousland, sem byggir á 30 ára reynslu kröfuharðra aðstæðna heimskautasvæðanna. Öll hönnun hefur verið þróuð og prófuð við kröfuhörðustu aðstæður, til að mynda þá er innratjaldið með 18kg slitstyrk sem er með þvi öflugasta sem finnst á markaðnum. Heilsárstjald sem er hannað fyrir kröfuharðari aðstæður, rennilássinn er frostfrír og tjaldið er mjög vind og veðurþolið. Tjaldið kemur með auka setti af stöngum og tvöföldum festingum fyrir hæla, fyrir virkilega krefjandi vindaðstæður. Straumlínulögun tjaldsins gerir það að verkum að það er einstaklega stöðugt í vindi og því kjörið fyrir fjalla- eða jöklaferðir. Patagonia 3 er sérstaklega hannað fyrir pulkur þar sem það kemur í sérstökum sleðavænum poka og hannað þannig að það er hægt að pakka því saman og setja upp með stöngunum innaní, sem er mikilvægt í miklum vind.

Helstu upplýsingar:

  • 3000mm vatnsheldni, 5000mm á botni
  • 360°opnun í fremra rými
  • Einfalt í uppsetningu og meðhöndlun.
  • Vasar í innra tjaldi fyrir búnað.
  • Flugnanet í innra tjaldi.
  • Helsport Airflow II loftunarkerfið tryggir bestu mögulegu loftun.
  • Sérhannaðar festingar á línum gera þær stöðugri og takmarka að þær flækist.
  • Styrkingar á öllum festum fyrir aukið veðurþol
  • Vindlokanir og snjóvörn
  • 2 inngangar
  • Rifþol 18 kg
  • Aukasett af stöngum
  • 25 tjaldhælar

Stærð poka: 23 x 50 cm
Þyngd tjalds: 6,54 kg (heildarþynd)
Þyngd hæla: 0,64 kg

Helsport Pole Channel system - Nánari upplýsingar